by Helena Sólveigar Aðalsteinsbur • 23 September 2026
27. september kl: 14:00 - 15:00

by Helena Sólveigar Aðalsteinsbur • 21 September 2026
22. september kl.17:00 að íslenskum staðartíma - Beint streymi frá gjörning Santiago Sierra í samvinnu við A/Political og listasöfn um víðan heim
by Helena Sólveigar Aðalsteinsbur • 9 September 2026
20. september kl: 14:00 - 15:00
by Helena Sólveigar Aðalsteinsbur • 26 August 2026
3. september – 29. nóvember 2026 Sýningin Nína, okkar kærasta Nína varpar nýju ljósi á líf, verk og arfleifð Nínu Sæmundsson (1892–1965), eins merkasta frumkvöðuls íslenskrar höggmyndalistar. Nína lifði og starfaði stóran hluta ævi sinnar erlendis, frá Kaupmannahöfn og París til Bandaríkjanna, þar sem hún byggði upp farsælan feril sem myndhöggvari. Saga hennar hefur lengi verið sögð sem saga íslensku sveitastúlkunnar sem hélt út í heim og öðlaðist frægð, en í sýningunni er sjónum beint að öðrum hliðum á lífi hennar, verkum og tengslum. Sýningin nálgast Nínu út frá hinsegin sjónarhorni og setur verk hennar í samtal við ný verk eftir Diljá Þorvaldsdóttur, Jo Pawlowska, Olgu Bergmann, Sabine A. Fischer og Victoria Ahrens. Listafólkið tekur verk Nínu sem útgangspunkt og opnar þau fyrir nýjum túlkunum þar sem meðal annars er fjallað um valfjölskyldur, nánd og umhyggju, sjálfsmynd, bernsku, náttúru og umbreytingu. Í gegnum þetta samtal kynslóða birtist Nína ekki aðeins sem söguleg persóna heldur sem listakona sem heldur áfram að kalla fram nýjar spurningar. Sýningin býður þannig upp á endurskoðun stöðu hennar í íslenskri listasögu og dregur fram mikilvægi hennar hinsegin listasögu Íslands. Listafólk: Nína Sæmundsson, Diljá Þorvaldsdóttir, Jo Pawlowska, Olga Bergmann, Sabine A. Fischer og Victoria Ahrens Sýningarstýrur: Viktoría Guðnadóttir og Dr. Ynda Eldborg Sýningin opnar á Ljósanótt, 3. september kl. 18:00 , í Listasafni Reykjanesbæjar og stendur til 29. nóvember 2026 . Sýningin er styrkt af Safnasjóði, Myndlistarsjóði og Kvikmyndasafni Íslands. // Nína, Our Dearest Nína 3 September – 29 November 2026 Nína, Our Dearest Nína sheds new light on the life, work and legacy of Nína Sæmundsson (1892–1965), one of the pioneering figures of Icelandic sculpture. Nína lived and worked abroad for much of her life, from Copenhagen and Paris to the United States, where she established a successful career as a sculptor. Her story has often been told as that of an Icelandic country girl who ventured out into the world and found success. This exhibition turns instead towards other aspects of her life, work and relationships. The exhibition approaches Nína from a queer perspective, placing her work in dialogue with new works by Diljá Þorvaldsdóttir, Jo Pawlowska, Olga Bergmann, Sabine A. Fischer and Victoria Ahrens. Taking Nína’s works as their point of departure, the artists open them to new interpretations exploring themes such as chosen family, intimacy and care, identity, childhood, nature and transformation. Through this intergenerational dialogue, Nína emerges not only as a historical figure, but as an artist whose life and work continue to raise new questions. The exhibition invites us to reconsider her place within Icelandic art history while bringing her significance within Iceland’s queer art history to the fore. Artists: Nína Sæmundsson, Diljá Þorvaldsdóttir, Jo Pawlowska, Olga Bergmann, Sabine A. Fischer and Victoria Ahrens Curators: Viktoría Guðnadóttir and Dr Ynda Eldborg The exhibition opens during Ljósanótt on 3 September at 18:00 at Reykjanes Art Museum and continues until 29 November 2026 . The exhibition is supported by the Museum Fund of Iceland, the Icelandic Visual Arts Fund and The National Film Archive of Iceland.
by Helena Sólveigar Aðalsteinsbur • 18 August 2026
3. september kl: 18:00 - 20:00
by Helena Sólveigar Aðalsteinsbur • 12 August 2026
Listamannaspjall með Erlu Þórarinsdóttur Á síðasta sýningardegi Ómur / Resonans , sunnudaginn 16. ágúst kl. 14:00 , verður Erla Þórarinsdóttir með listamannaspjall í safninu. Í verkum Erlu mætast endurtekning, hreyfing og tákn í verkum sem draga í sig óstöðugleika samtímans. Þar mætast ógn og von, eyðileggingarmáttur og samkennd. Sýningarstjórar Ómur / Resonans eru Helena Solveigar Aðalsteinsbur og Helga Þórsdóttir. 16. ágúst er jafnframt síðasti sýningardagur Ósamhverfrar endurskoðunar / Asymmetrical Review eftir Steingrím Eyfjörð , í sýningarstjórn Daríu Sól Andrews.
by Helena Sólveigar Aðalsteinsbur • 12 August 2026
12. ágúst 2026, kl 12:12. Við bjóðum þér í róandi jógatíma í Listasafni Reykjanesbæjar. Sól og tungl í takt við alheiminn er við undirbúum okkur fyrir sólmyrkvann. Mjúkt flæði með sól og tunglhyllingu, slökun og gong til að endurnæra taugakerfið og draga úr streitu. Töfrarnir byrja innan frá og Ágústa Hildur og Álfhildur munu leiða tímann. Þetta verður rými til að anda, finna, sleppa og njóta í flæði sem hentar öllum. Tíminn er opinn öllum, óháð aldri eða reynslu, og börn og fjölskyldur eru sérstaklega velkomin. Flæðið er mjúkt og aðgengilegt svo hvert og eitt geti tekið þátt á sínum forsendum. Viðburðurinn skapar áhugaverða tengingu við sýningu Erlu Þórarinsdóttur , Ómur / Resonans , þar sem litir, tíðni og orka gegna mikilvægu hlutverki og skynjun áhorfandans verður hluti af upplifuninni. / We invite you to a calming yoga session at Reykjanes Art Museum. Sun and moon in harmony with the universe as we prepare for the solar eclipse. A gentle flow featuring sun and moon salutations, relaxation and gong sounds to restore the nervous system and reduce stress. The magic begins within, and Ágústa Hildur and Álfhildur will guide the session. It will be a space to breathe, feel, let go and enjoy a flow that is suitable for everyone.  The session is open to all, regardless of age or experience, and children and families are especially welcome. The flow is gentle and accessible, allowing everyone to participate in a way that feels right for them.
by Helena Sólveigar Aðalsteinsbur • 15 June 2026
17. júní kl: 14:00 - 16:00
by Helena Sólveigar Aðalsteinsbur • 2 June 2026
Safnið er nú opið á sumartíma, frá kl. 10:00–17:00 þriðjudaga til sunnudaga. Tvær einkasýningar standa nú yfir í safninu til 16. ágúst. Annars vegar sýning Steingríms Eyfjörð, Ósamhverf endurskoðun, og hins vegar sýning Erlu Þórarinsdóttur, Ómur.  Gestir eru hvattir til að heimsækja safnið og njóta sýninganna yfir sumarmánuðina.
by Helena Sólveigar Aðalsteinsbur • 1 June 2026
30. maí kl 14:00
Sýna meira