Nína á milli lína/Nína Between the Lines með Sigríði Lárettu Jónsdóttur og Uglu Egilsdóttur

8. nóvember kl: 14:00

Sigríður Láretta Jónsdóttir, handritshöfundur og leikkona segir frá og les upp úr leikverki í vinnslu um Nínu Sæmundsson og elskhuga hennar, Inge Epstrup. Ugla Egilsdóttir, fjöllistakona les með henni.

Sigríður starfaði sem leikkona í London, þar sem hún lék meðal annars í Shakespeare’s Globe. Á Íslandi hefur hún meðal annars leikið aðalhlutverk í kvikmyndinni Auður og í dansleiksýningunni Harmhljóð horfinna hluta. Hún skrifaði og meðleikstýrði myndinni “Geltu!”, sem vann Edduverðlaun sem unglingamynd ársins 2025.

Í verkum sínum leitast Sigríður við að segja hinsegin sögur undir áhrifum frá töfraraunsæi, þar sem blákaldur raunveruleiki mætir draumkenndri undirmeðvitund.

Hver ákveður hvaða konur mega fljúga? Af hverju vantar andlitið á styttuna Afrekshugur?Og hvað gerist þegar Elín sýnir Aldísi að listin er ekki bara myndir, heldur möguleikar?

Hólmfríður Helga les brot úr smásögu sinni Útsýnið af fjórðu hæð og segir frá því hvernig Nína Sæmundsson birtist óvænt meðan sagan var í mótun.

Hólmfríður Helga Sigurðardóttir er Akureyringur, fædd 1985. Hún hefur undanfarin ár kennt börnum og unglingum en er nú sjálf nemandi í ritlist við Háskóla Íslands. Hún er búsett í Reykjavík með eiginmanni sínum og tveimur börnum.

Sagan birtist fyrst sumarið 2024 í veftímaritinu Stelkur
(www.stelkur.is)

Sigríður Láretta Jónsdóttir, playwright and actress, will introduce and read excerpts from a play in progress about Nína Sæmundsson and her lover, Inge Epstrup. She will be joined in the reading by multidisciplinary artist Ugla Egilsdóttir.

Sigríður worked as an actress in London, where she performed at Shakespeare’s Globe, among other venues. In Iceland, her acting credits include the leading role in the film Auður and a role in the dance-theatre production Harmhljóð horfinna hluta. She wrote and co-directed the film Geltu!, which won the 2025 Edda Award for Youth Film of the Year.

Through her work, Sigríður seeks to tell queer stories influenced by magical realism, where stark reality meets the dreamlike world of the subconscious.

Who decides which women are allowed to fly? Why is the statue Afrekshugur missing its face? And what happens when Elín shows Aldís that art is not just about images, but about possibilities?
Hólmfríður Helga will read an excerpt from her short story Útsýnið af fjórðu hæð (The View from the Fourth Floor) and discuss how Nína Sæmundsson unexpectedly found her way into the story as it was taking shape.

Hólmfríður Helga Sigurðardóttir was born in Akureyri in 1985. In recent years, she has worked as a teacher of children and teenagers, but is now a student herself, studying creative writing at the University of Iceland. She lives in Reykjavík with her husband and their two children.

The story was first published in the summer of 2024 in the online literary magazine Stelkur (
www.stelkur.is).

This is paragraph text. Click it or hit the Manage Text button to change the font, color, size, format, and more. To set up site-wide paragraph and title styles, go to Site Theme.

Eftir Helena Sólveigar Aðalsteinsbur • 13. apríl 2026
11. apríl, 2026 kl 13:00 - 14:00.
Eftir Helena Sólveigar Aðalsteinsbur • 5. mars 2026
14. mars, 2026 kl 13:00 - 14:00.
Eftir Helena Sólveigar Aðalsteinsbur • 23. febrúar 2026
28. febrúar, 2026 kl 13:00 - 14:00.
Fleiri færslur