Eftir Helena Sólveigar Aðalsteinsbur 5. febrúar 2026
7. febrúar, 2026 kl 13:00 - 14:00.
Eftir Helena Sólveigar Aðalsteinsbur 21. janúar 2026
Á sunnudaginn kl. 14:00 fer fram listamannaspjall við Tuma Magnússon á Listasafni Reykjanesbæjar. Spjallið er leitt af sérfræðingi safnsins, Helenu Solveigu Aðalsteinsbur, og býður gestum upp á innsýn í verk og hugmyndir listamannsins í tengslum við sýninguna Héðan þangað þaðan hingað . Tumi leiðir gesti um sýninguna og fjallar um aðferðir sínar, efnivið og þær hugmyndir sem liggja að baki verkanna. Ferðalag, ganga og endurtekning eru gegnumgangandi þemu í list hans og birtast bæði sem formlegar aðferðir og sem heimspekilegar spurningar. Sýningin Héðan þangað þaðan hingað opnaði á laugardaginn og markar mikilvægan áfanga í ferli Tuma. Þar mætast metnaðarfullar vídeó og hljóð innsetningar og vel valin verk frá fjölbreyttum ferli hans. Í samtali Tuma og Helenu verður fjallað um þróun verkanna, tengsl þeirra við rými safnsins og hvernig hugmyndir um umbreytingu móta sýninguna í heild. Listamannaspjallið er kjörið tækifæri til að kynnast verkunum nánar og heyra beint frá listamanninum sjálfum.
Eftir Helena Sólveigar Aðalsteinsbur 7. janúar 2026
Við bjóðum ykkur velkomin á sýningu Tuma Magnússonar, Héðan þangað þaðan hingað, laugardaginn 17. janúar kl. 14:00 - 16:00. Tumi Magnússon (f. 1957) býr og starfar í Kaupmannahöfn og Reykjavík. Í verkum sínum fjallar hann um tíma, hreyfingu og hið hversdagslega flæði tilverunnar, þar sem breyting er eina festan. Á sýningunni má sjá lykilverkið Kaffi og hland (1998–99), röð átta málverka sem sýna örfín litbrigði frá kaffibrúnum til pissuguls og fanga tímann sem kyrra, en um leið óstöðuga heild. Einnig eru sýnd nýrri vídeó- og hljóðverk á borð við Tímaréttingarlaglínur (2021–25) og Almenningssamgöngur (2020–25), þar sem einfaldar athafnir og ferðir eru samstilltar í taktfastar, tónrænar samsetningar. Ferðalag, ganga og endurtekning eru gegnumgangandi þemu í verkum Tuma. Með þeim umbreytir hann heimspekilegum þversögnum um sjálf, tíma og breytingu í ljóðræna og skynræna upplifun. Gavin Morrison er sýningarstjóri. Sýningin er styrkt af Myndlistarsjóði.
Show More