Opnun: Nína, okkar kærasta Nína

3. september kl: 18:00 - 20:00

Verið hjartanlega velkomin á opnun sýningar um Nínu Sæmundsson (1892–1965) í Listasafni Reykjanesbæjar.


Sýningin varpar nýju ljósi á líf, verk og arfleifð Nínu, frumkvöðuls í íslenskri myndlist, og nálgast sögu hennar út frá hinsegin sjónarhorni. Verk Nínu eru sett í samtal við ný verk fimm samtímalistafólks, Diljár Þorvaldsdóttur, Jo Pawlowska, Olgu Bergmann, Sabine A. Fischer og Victoria Ahrens, sem öll hafa unnið út frá verkum hennar.


Í sýningunni mætast þannig ólíkar kynslóðir, reynsluheimar og sjónarhorn og til verður nýtt samtal um Nínu, íslenska listasögu og hinsegin menningararf.


Sýningarstýrur eru Viktoría Guðnadóttir og Dr. Ynda Elborg.


Verkefnið er styrkt af Myndlistarsjóði, Safnasjóði og Kvikmyndasafni Íslands.

Eftir Helena Sólveigar Aðalsteinsbur • 13. apríl 2026
11. apríl, 2026 kl 13:00 - 14:00.
Eftir Helena Sólveigar Aðalsteinsbur • 5. mars 2026
14. mars, 2026 kl 13:00 - 14:00.
Eftir Helena Sólveigar Aðalsteinsbur • 23. febrúar 2026
28. febrúar, 2026 kl 13:00 - 14:00.
Fleiri færslur