Dans elementanna

19. janúar 2008

Daði Guðbjörnsson

19. janúar 2008 - 9. mars 2008


Laugardaginn 19. janúar var opnuð sýning á nýjum olíumálverkum Daða Guðbjörnssonar í Listasafni Reykjanesbæjar og ber sýningin heitið Dans elementanna. Daði er einn af þekktustu listamönnum landsins og hefur haldið fjölda sýninga hér heima og erlendis. Hann nam myndlist við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og við Ríkisakademíuna í Amsterdam. 
 Í texta Kristínar G. Guðnadóttur í sýningarskránni sem gefin er út af þessu tilefni segir m.a.: “Elementin fjögur eða höfuðskepnurnar – vatn, loft, jörð og eldur eru áberandi í nýjum verkum Daða og skapa umgjörð eða leiksvið táknanna í formi landslags eða margræðs myndrýmis.”

Sýningarsalur Listasafns Reykjanesbæjar er í Duushúsum. Þar er opið alla daga frá kl. 11.00-17.00 og aðgangur er ókeypis. Sýningin Dans elemetanna stendur til 9. mars.

Merki Listasafns Reykjanesbæjar
25. september 2025
Listasafn Reykjanesbæjar leitar að sérfræðingi til afleysinga í eitt ár.
Málverk í grænum tónum á sýningunni Hulduefni, einkasýningu Vilhjálms Bergssonar.
22. september 2025
Sunnudagurinn 12. október 2025, kl. 15:00.
Málverk í bláum tónum á Heimsmynd, einkasýningu Áka Gränz
12. september 2025
Sunnudagurinn 12. október 2025 kl. 14:00.
Fleiri færslur