Erlingsstofa

1. september 2012

Erlingur Jónsson

1. september 2012 - 30. september 2012

The body content of your post goes here. Árið 1991 var sú ákvörðun tekin í bæjarstjórn Keflavíkur að útnefna í fyrsta sinn bæjarlistamann.  Erlingur Jónsson varð fyrstur til að hljóta útnefningu og var hann sæmdur heiðursnafnbótinni Listamaður Keflavíkur sem nú kallast Listamaður Reykjanesbæjar.  Mönnum þótti Erlingur vel að þessu kominn þar sem hann hafði í áratugi unnið að listsköpun í þágu bæjarbúa, bæði að eigin verkum og ekki síður sem áhrifavaldur ungra og upprennandi listamanna í bænum en hann starfaði lengi sem kennari við grunnskóla bæjarins og var einnig frumkvöðull Baðstofunnar sem var vettvangur eldri nemenda í myndlist.
Með sýningu á Ljósanótt á nokkrum verkum Erlings, í ófullgerðum sal Bryggjuhússins, voru kynntar þær hugmyndir menningarráðs, að í framtíðinni muni Listasafn Erlings Jónssonar verða eitt af söfnunum í Duushúsum og þar verði ávallt hægt að ganga að verkum hans vísum. Eftirtaldir 14 skúlptúrar voru á sýningunni sem stóð út september.
 
1. Lúður, marmari serpentin                            8.  Gapið, marmari, serpentin
2. Eldliljan, brons á steinsúlu                          9.  Gollý, marmari, serpentin
3. Lífsins tré, stál á steinundirstöðu               10. Gagnrýnandinn, viður
4. Gagnrýnandinn, stál                                   11. Njörður, epoxy á steini
5. Fulltrúi á fiskiþingi, járn                              12. Heiðurshjón, stál
6. Íslands Hrafnistumenn, stál                        13. Starfslokasamningur, brons, stál
7. Fiskur, járn á viðarundirstöðu                     14. Fuglinn Fönix, stál á viðarplötu
 
Í Reykjanesbæ má víða sjá önnur verk eftir Erling Jónsson og var gestum bent á bæklinginn um útilistaverk bæjarins sem lá frammi og voru þeir hvattir til að leggja leið sína um bæinn og njóta verkanna í eðlilegri umgjörð. 

Eftir Helena Sólveigar Aðalsteinsbur 12. nóvember 2025
Áki Granz: Samtal um list og minningar
Eftir Helena Sólveigar Aðalsteinsbur 12. nóvember 2025
Opin listsmiðja barna með Freyju Eilíf
4. nóvember 2025
Opin listsmiðja barna með Freyju Eilíf
Fleiri færslur