Hinsegin rannsóknir og list Nínu Sæmundssonar

22. nóvember kl: 14:00

Sunnudaginn 22. nóvember kl. 14:00 býður Listasafn Reykjanesbæjar til áhugaverðs viðburðar þar sem hinsegin fræði og listasaga mætast.

Ásta Kristín Benediktsdóttir, dósent við Háskóla Íslands, mun fjalla um Nínu í hinsegin sögulegu samhengi og spyrja áleitinna spurninga um mikilvægi þess að halda þessum kafla í ævisögu listakonunnar á lofti.

Nína Sæmundsson átti farsælan feril erlendis og naut þar viðurkenningar sem myndhöggvari, en verk hennar og hugmyndir áttu síður hljómgrunn í íslensku listalífi í hennar samtíma. Í leiðsögn Markúsar Þórs Andréssonar verður fjallað um fagurfræði verka hennar, alþjóðlegt samhengi þeirra og þá sérstöðu sem hún skipar í íslenskri listasögu sem listamaður sem náði fótfestu erlendis án þess að mynda sterka tengingu við framvindu myndlistar hér á landi.

Markús Þór Andrésson (f. 1975) er safnstjóri Listasafns Reykjavíkur frá árinu 2025 eftir átta ár sem deildarstjóri við safnið. Hann stundaði nám í sýningarstjórnun við CCS Bard College og hefur starfað sem textahöfundur, sýningarstjóri og kvikmyndagerðarmaður, með sérstaka áherslu á íslenska myndlistarmenn og listasenu. Hann stýrir starfsemi þriggja safnhúsa Listasafns Reykjavíkur, auk þess sem safnið ber ábyrgð á listaverkum í almenningsrými borgarinnar.

Viðburðurinn býður upp á spennandi samtal milli ólíkra fræðasviða og nýjar leiðir til að nálgast list og listasögu.

Öll velkomin!

Queer Studies and the Art of Nína Sæmundsson

On Sunday, November 22, at 2:00 PM, Reykjanes Art Museum invites you to a special event exploring the intersection of queer studies and art history.

Ásta Kristín Benediktsdóttir, Associate Professor at the University of Iceland, will explore Nína’s life in the context of queer history, raising thought-provoking questions about the importance of keeping this aspect of the artist’s life and legacy in the spotlight.

Nína Sæmundsson enjoyed a successful career abroad, where she gained recognition as a sculptor. However, her work and artistic ideas found less resonance within the Icelandic art scene during her lifetime. In this guided tour, Markús Þór Andrésson will explore the aesthetics of her work, its international context, and her distinctive place in Icelandic art history as an artist who established herself abroad without developing strong ties to the evolution of visual art in Iceland.

Markús Þór Andrésson (b. 1975) has been Director of the Reykjavík Art Museum since 2025, following eight years as Head of Exhibitions at the museum. He studied curatorial studies at CCS Bard College and has worked as a writer, curator, and filmmaker, with a particular focus on Icelandic artists and the Icelandic art scene. He oversees the museum’s three locations, as well as its collection of artworks in public spaces throughout the city.

The event offers an opportunity to discover new perspectives on art, history, and cultural heritage.

This is paragraph text. Click it or hit the Manage Text button to change the font, color, size, format, and more. To set up site-wide paragraph and title styles, go to Site Theme.

Eftir Helena Sólveigar Aðalsteinsbur • 13. apríl 2026
11. apríl, 2026 kl 13:00 - 14:00.
Eftir Helena Sólveigar Aðalsteinsbur • 5. mars 2026
14. mars, 2026 kl 13:00 - 14:00.
Eftir Helena Sólveigar Aðalsteinsbur • 23. febrúar 2026
28. febrúar, 2026 kl 13:00 - 14:00.
Fleiri færslur