Listahátíð barna og ungmenna 2021

6. maí 2021
Uppi á vegg hanga fullt af teikningum af dýrum.

6. maí 2021 - 24. maí 2021


Listahátíð barna og ungmenna í Reykjanesbæ verður haldin í fimmtánda sinn í Duus safnahúsum þann 6. maí – 24. maí 2021.

Listahátíðin samanstendur af fjölbreyttu listastarfi barna og ungmenna. Þátttakendur koma úr öllum leikskólum og grunnskólum Reykjanesbæjar ásamt nemendum af listnámsbraut Fjölbrautaskóla Suðurnesja.


Í ár verða listsýningarnar fjölbreyttar, leikskólabörn hafa unnið með þemað Dýr og verða verk þeirra sýnd í Listasal. Grunnskólarnir sýna brot af því besta úr listgreinastarfi vetrarins í Bátasal og nemendur listnámsbrautar FS setja upp samsýningu á verkum sínum í Bíósal.


Allir velkomnir, opið alla daga frá 12–17 og frítt inn.

Eftir Helena Sólveigar Aðalsteinsbur 12. nóvember 2025
Áki Granz: Samtal um list og minningar
Eftir Helena Sólveigar Aðalsteinsbur 12. nóvember 2025
Opin listsmiðja barna með Freyju Eilíf
4. nóvember 2025
Opin listsmiðja barna með Freyju Eilíf
Fleiri færslur