Listahátíð barna og ungmenna 2022

22. apríl 2022

Listahátíð barna og ungmenna 2022

Herbergi með fullt af hnattlíkönum sem hanga úr loftinu.
22. apríl 2022 - 15. maí 2022

Listahátíð barna og ungmenna í Reykjanesbæ verður haldin í sextánda sinn í Duus safnahúsum þann 28. apríl – 15. maí 2022.
 
Listahátíðin samanstendur af fjölbreyttu listastarfi barna og ungmenna. Þátttakendur koma úr öllum leikskólum og grunnskólum Reykjanesbæjar ásamt nemendum af listnámsbraut Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
 
Í ár verða listsýningarnar margvíslegar, leikskólabörn setja upp sýninguna Er ekki jörðin fyrir alla?, þar sem Barnasáttmáli sameinuðu þjóðanna hefur svifið yfir vötnum og verða verk þeirra sýnd í Listasal. Í sýningu grunnskólanna fáum við að sjá brot af því besta úr verk- og listgreinastarfi vetrarins í Bátasal. Á sýningu Fjölbrautaskólans fáum við að sjá vel valin verk eftir útskriftarnemendur af listnámsbraut í Bíósal.
 
Komið við og sjáið sköpunargleði barna og ungmenna í Reykjanesbæ.
 
Opið alla daga frá 12–17 og ókeypis aðgangur er á sýningarnar.

Yfirlitsmynd af sýningu í Listasafni Reykjanesbæjar
3. september 2025
Myndverk sýningarinnar eru úr safneign Listasafns Reykjanesbæjar, ásamt verkum í eigu fjölskyldu listamannsins. Áki hefði orðið 100 ára á þessu ári og mun sýningin heiðra minningu listamannsins með völdu yfirliti á verkum hans.
Tvö verk eftir Vilhjálm Bergsson
3. september 2025
Nýverið barst Listasafni Reykjanesbæjar dýrmæt gjöf frá Vilhjálmi Bergssyni, myndlistarmanni. Í henni er að finna verk frá lokum sjötta áratugar síðustu aldar, fram á þriðja áratug þessarar aldar; nær sjötíu ár af samfelldri myndlistarsköpun Vilhjálms Bergssonar.
Gemfar
Eftir María P 6. júlí 2025
6. júlí 2025
Fleiri færslur