Óvættir og aðrar vættir

1. október 2011

Norrænt samstarfsverkefni grunnskólanemenda af Norðurlöndum  

1. september 2011 - 16. október 2011


Listasafn Reykjanesbæjar tók s.l. vetur þátt í norrænu listverkefni ásamt listasöfnum bæði í Noregi og Svíþjóð og mun verkefnið enda á sýningum í öllum löndunum nú í haust. 


Íslenska sýningin Óvættir og aðrar vættir, opnar fimmtudaginn 1. september kl. 14.00 í Bíósal Duushúsa og er þar með á dagskrá Ljósanætur, menningar- og fjölskylduhátíðar Reykjanesbæjar. 


Á sýningunni má sjá tæplega 60 verk frá öllum þremur þátttökulöndunum. Verkefnið gekk út á að hópur 12-14 ára unglinga í þessum þremur löndum var fenginn til að myndskreyta þjóðsögur úr heimahögunum og voru til þess notaðar grafískar aðferðir. 


Íslenski hópurinn kom frá Myllubakkaskóla í Keflavík og vann hópurinn út frá sögunni Rauðhöfði undir stjórn myndmenntakennarans Sigríðar Dísar Guðmundsdóttir og Elvu Hreiðarsdóttur formanns félagsins Íslenskrar grafíkur en félagið hafði milligöngu um verkefnið. 


Hin söfnin voru Dalarnas Museum í Svíðjóð og Haugesund Billedgalleri í Noregi. 


Verkefnið hlaut styrk úr Barnamenningarsjóði og mun sýningin standa út september. 

Duushús eru opin virka daga frá kl. 12.00-17.00 og frá kl. 13.00-17.00 um helgar.

Eftir Helena Sólveigar Aðalsteinsbur 12. nóvember 2025
Áki Granz: Samtal um list og minningar
Eftir Helena Sólveigar Aðalsteinsbur 12. nóvember 2025
Opin listsmiðja barna með Freyju Eilíf
4. nóvember 2025
Opin listsmiðja barna með Freyju Eilíf
Fleiri færslur