Til sjávar og sveita

24. janúar 2015

Gunnlaugur Scheving

24. janúar 2015 - 8. mars 2015


Laugardaginn 24. janúar opnar í Listasafni Reykjanesbæjar í Duushúsum sýningin til Sjávar og sveita. Sýningin er samstarfsverkefni Listasafns Íslands, Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar og Listasafns Árnesinga. Markmið samstarfsins og þriggja sýninga sem söfnin unnu saman, er að kynna ákveðin tímabil og stefnur í íslenskri myndlist. Á þessari sýningu eru tekin fyrir verk Gunnlaugs sem er meðal helstu listamanna þjóðarinnar og endurspegla verkin á sýningunni vel þá breytingu sem varð í íslenskri myndlist á millistríðsárunum. Gunnlaugur tilheyrir þeirri kynslóð listamanna sem komu fram í lok fjórða áratugarins. Þjóðernisátök og efnahagskreppa beindu listamönnum inn á nýjar brautir þar sem landslagið var ekki lengur aðalviðfangsefnið heldur nánasta umhverfi og daglegt líf.

Í Listasafni Íslands er varðveitt mikið safn verka Gunnlaugs Scheving og verkin á sýningunni koma öll úr safneign safnsins. Á sýningunni eru nokkur af risastórum verkum Gunnlaugs en einnig minni verk, frumdrög og skissur sem gefa gestum tækifæri á að kynnast myndhugsun listamannsins og vinnuferli. Gunnlaugur skoðar í þaula hvernig menn bera sig að vinnu, hvort sem um ræðir sjómenn eða bændur, hann skoðar afmarkaða hluti en einnig hvernig myndbyggingin vinnur með og miðlar hreyfingu og átökum við vinnu, samspili manns og náttúru.

Verkin á sýningunni sýna þróun hugmynda, vangaveltur og þrotlausa vinnu listamannsins þar sem samlífi manns og náttúru er umfjöllunarefnið og rauði þráðurinn í verkum Gunnlaugs. Gestum er gefinn kostur á leik og fræðslu með verkefnum til þess að glíma við og hafa gaman af um leið og töfrar Gunnlaugs Scheving birtast okkur í myndum hans, stórum og smáum. Sýningin stendur til 8. mars. Safnið er opið virka daga kl. 12.00 – 17.00, helgar kl. 13.00 – 17.00. Ókeypis aðgangur.

Sýningastjóri er Björg Erlingsdóttir

Stytta og mynd eftir Viljálm Bergsson
Eftir María P 4. september 2025
4. september 2025 - 4. janúar 2026
Yfirlit af verkum Áka Guðna Gränz úr Listasafni Reykanesbæjar 20255
Eftir María P 4. september 2025
4. september 2025 – 4. janúar 2026
Yfirlitsmynd af sýningu í Listasafni Reykjanesbæjar
3. september 2025
Myndverk sýningarinnar eru úr safneign Listasafns Reykjanesbæjar, ásamt verkum í eigu fjölskyldu listamannsins. Áki hefði orðið 100 ára á þessu ári og mun sýningin heiðra minningu listamannsins með völdu yfirliti á verkum hans.
Fleiri færslur