TÓMT

22. október 2010

Jón B.K. Ransu

22. október 2010 - 5. desember 2010


Sýningin TÓMT verður opnuð föstudaginn 22. október n.k. kl. 18.00 og eru allir velkomnir.

Þar er á ferðinni listamaðurinn Jón B.K.Ransu með ný málverk. Ransu hefur sýnt víða, bæði á einkasýningum og samsýningum og einnig hefur hann lengi verið virkur í skrifum um myndlist ásamt því að kenna myndlist.

Sýningin Tómt er framhald tveggja sýninga með sama nafni þar sem Ransu vinnur áfram með hugmyndina „að ramma inn tómt" og vísar þar til þess hvernig ramminn hefur þá stöðu að vera hvorki hluti af myndinni né heldur er hann aðskilinn frá henni og því spurning um gildi hvors um sig. Í skemmtilegum texta eftir listamanninn í sýningarskránni veltir hann m.a. fyrir sér sambandinu á milli þagnarinnar og tónanna í tónlistinni, þar sem hvoru tveggja er jafn mikilvægt og hvorugt getur án hins verið. Kann sams konar samband að vera á milli forma og tóms?

Sýningin Tómt er í sýningarsal Listasafnsins í Duushúsum í Reykjanesbæ og stendur til 5. desember. Safnið er opið alla daga frá kl. 13.00-17.00 og ókeypis aðgangur.

Nánari upplýsingar: Ransu: 694-1989, jbkransu@gmail.com


Merki Listasafns Reykjanesbæjar
25. september 2025
Listasafn Reykjanesbæjar leitar að sérfræðingi til afleysinga í eitt ár.
Málverk í grænum tónum á sýningunni Hulduefni, einkasýningu Vilhjálms Bergssonar.
22. september 2025
Sunnudagurinn 12. október 2025, kl. 15:00.
Málverk í bláum tónum á Heimsmynd, einkasýningu Áka Gränz
12. september 2025
Sunnudagurinn 12. október 2025 kl. 14:00.
Fleiri færslur