Línur, flækjur og allskonar

26. nóvember 2022

Guðrún Gunnarsdóttir

kona stendur við vegg sem hefur lsitaverk á sér

26. nóvember 2022 - 5. mars 2023


Línur, flækjur og allskonar
Einkasýning Guðrúnar Gunnarsdóttur opnar laugardaginn 26. nóvember 2022 kl. 14:00.

 

Guðrún Gunnarsdóttir er frumkvöðull á sviði þráðlistar og gefur sýning hennar góða mynd af þróun listamannsins frá myndvefnaði á áttunda áratug síðustu aldar, til þrívíddarmynda sem einkenna myndlist hennar í dag.

 

Þráðlist eins og sú sem Guðrún Gunnarsdóttir ástundar er ótvírætt þrívíddarlist í klassískum skilningi, þótt listakonan gangi í berhögg við ýmsar siðvenjur sem fylgt hafa slíkri list frá örófi alda. Til að mynda hirðir hún ekki um að setja verk sín á stalla, og þar með bæði upphefja þau og staðsetja utan seilingar. Þess í stað fá þau að leika lausum hala í námunda við okkur, hanga ofan úr lofti, fikra sig ofur varlega upp og niður veggi, eða mynda smágerðar lífrænar einingar niður við fótskör. Og í stað þess að kalla á athygli, eins og stallsettir skúlptúrar óneitanlega gera, eru verk Guðrúnar gerð til að birtast okkur eins og fyrir tilviljun, jafnvel koma þ

Sýningin stendur til og með 5. mars 2023.

ægilega á óvart, ekki ósvipað og ljóðlínur með óvæntu niðurlagi.

 

Sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur.

Sýningin er styrkt af Myndlistarsjóði.


Eftir Helena Sólveigar Aðalsteinsbur 12. nóvember 2025
Áki Granz: Samtal um list og minningar
Eftir Helena Sólveigar Aðalsteinsbur 12. nóvember 2025
Opin listsmiðja barna með Freyju Eilíf
4. nóvember 2025
Opin listsmiðja barna með Freyju Eilíf
Fleiri færslur