You Are Here / Jesteś tutaj / Du er her / Þú ert hér

26. nóvember 2022

Vena Naskręcka & Michael Richardt

Kona í bleikum samfestingi og maður í gráum hettupeysu standa hvort við hliðina á öðru.

Sýning listamannanna Vena Naskręcka og Michael Richardt, You Are Here / Jesteś tutaj / Du er her / Þú ert hér, opnar laugardaginn 26. nóvember 2022 kl. 14:00.

 

Vena og Michael eru gjörningalistamenn og mun sýningin verða vitnisburður um hvar þau eru stödd á þessum ákveðna tímapunkti og skrásetning á því sem þeim er nú hugleikið. Þau eru hér og nú, erlendir ríkisborgarar á Íslandi, að setja mark sitt á Listasafn Reykjanesbæjar þar sem þau ríkja í ákveðinn tíma.

 

Vena Naskręcka (1986) vinnur að myndlist á þverfaglegan hátt, með gjörningum, skúlptúr, fundnum hlutum og myndbandi, og byggja viðfangsefni hennar meðal annars á heimspeki, taugavísindum, fötlunarfræði og tækni. Naskręcka miðlar þeim með líkama sínum, en hún lítur á hann sem boðleið fyrir sjónræn, tilfinningaleg og vitsmunaleg samskipti.

Naskręcka er útskrifuð með MA-gráðu í myndlist frá CIT Crawford College of Art & Design, Cork, Írlandi, BA-gráðu í myndlist frá Hanze University Groningen – Academy Minerva, Hollandi og lærði keramík í the Jacek Malczewski School of Fine Arts í Czestochowa, Póllandi.

Hún er fædd í Czestochowa, Póllandi, hún býr og starfar í Reykjanesbæ.

 

Michael Richardt (1980) er gjörningalistamaður sem sérhæfir sig í gjörningum byggðum á tíma og lengd. Hann hugsar út frá mæðraveldi og skapar verk með sjálfþróuðu kerfi byggðu á litrófi.

Richardt útskrifaðist með MFA-gráðu í sviðslistum frá Listaháskóla Íslands. Hann stundaði nám við Amsterdam University of the Arts, Amsterdam, Hollandi, Codarts Circus School, Rotterdam, Hollandi og klassíska olíumálun hjá listamanninum Poul Winther, Hjørring, Danmörku. Richardt hefur unnið sem dansari fyrir We Go, komið fram á Copenhagen Jazz Festival Danmörku, og sem leikari í „Polishing Iceland“ með Reykjavík Ensemble í Tjarnarbíói. Richardt er fæddur í Danmörku og á einnig ættir að rekja til Níger, hann býr og starfar í Reykjavík.

 

Sýningarstjóri er Helga Arnbjörg Pálsdóttir, listfræðingur.

Sýningin er styrkt af Safnasjóði.

Listamennirnir eru styrktir af Myndlistarsjóði og Statens Kunstfond.

Sýningin stendur til og með 5. mars 2023.

 


Yfirlitsmynd af sýningu í Listasafni Reykjanesbæjar
3. september 2025
Myndverk sýningarinnar eru úr safneign Listasafns Reykjanesbæjar, ásamt verkum í eigu fjölskyldu listamannsins. Áki hefði orðið 100 ára á þessu ári og mun sýningin heiðra minningu listamannsins með völdu yfirliti á verkum hans.
Tvö verk eftir Vilhjálm Bergsson
3. september 2025
Nýverið barst Listasafni Reykjanesbæjar dýrmæt gjöf frá Vilhjálmi Bergssyni, myndlistarmanni. Í henni er að finna verk frá lokum sjötta áratugar síðustu aldar, fram á þriðja áratug þessarar aldar; nær sjötíu ár af samfelldri myndlistarsköpun Vilhjálms Bergssonar.
Gemfar
Eftir María P 6. júlí 2025
6. júlí 2025
Fleiri færslur