Listamannaspjall: Tumi Magnússon
14. apríl 2026
Nú er síðasta vika sýningar Héðan þangað þaðan hingað
eftir Tuma Magnússon, sem lýkur 19. apríl. Á síðasta sýningardegi, sunnudaginn 19. apríl, verður Tumi með listamannaspjall í safninu sem hefst klukkan 14:00.
Sýningin Héðan þangað þaðan hingað er sýningarstýrð af Gavin Morrison og kynnir verk myndlistarmannsins Tuma Magnússonar. Í verkum sínum fjallar hann um tíma, hreyfingu og hið hversdagslega flæði tilverunnar, þar sem breyting er eina festan.
Ferðalag, ganga og endurtekning eru gegnumgangandi þemu í sýningnunni. Með þeim umbreytir hann heimspekilegum þversögnum um sjálf, tíma og breytingu í ljóðræna og skynræna upplifun.
Sýningin er styrkt af Myndlistarsjóði.





