Listahátíð barna og ungmenna

27. apríl 2026

30. apríl – 10. maí 2026


Listahátíð barna og ungmenna í Reykjanesbæ verður haldin í Duus Safnahúsum 30. apríl – 10. maí 2026.


Formleg opnun með leikskólabörnum verður haldin 30. apríl.

 

Listahátíðin er hluti af BAUN, barna- og ungmennahátíð og er afrakstur fjölbreytts listastarfs nemenda úr öllum leikskólum og grunnskólum Reykjanesbæjar og af listnámsbraut Fjölbrautaskóla Suðurnesja.


Í ár er yfirskrift sýningarinnar hjá leikskólabörnum Náttúran á Reykjanesi og er sýningin í Listasal. Í sýningu leikskólanna fáum við að sjá brot af því besta úr verk- og listgreinastarfi vetrarins.


Á sýningu Fjölbrautaskólans fáum við að sjá vel valin verk eftir útskriftarnemendur af listnámsbraut í Bíósal.

Komið við og sjáið sköpunargleði barna og ungmenna í Reykjanesbæ.


Eftir Helena Sólveigar Aðalsteinsbur 13. apríl 2026
11. apríl, 2026 kl 13:00 - 14:00.
Eftir Helena Sólveigar Aðalsteinsbur 5. mars 2026
14. mars, 2026 kl 13:00 - 14:00.
Eftir Helena Sólveigar Aðalsteinsbur 23. febrúar 2026
28. febrúar, 2026 kl 13:00 - 14:00.
Fleiri færslur