SPEGILSÝNIR

5. mars 2010

Samsýning

5. mars 2010 - 18. mars 2010


     Bára Kristinsdóttir , Einar Falur Ingólfsson , Jónatan Grétarsson , Katrín Elvarsdóttir , Sigurþór Hallbjörnsson  og Þórdís Erla Ágústsdóttir

Lósmyndasýningin Spegilsýnir var opnuð í Listasafni Reykjanesbæjar föstudaginn 5. mars kl. 18.00. Listamennirnir Bára Kristinsdóttir , Einar Falur Ingólfsson, Jónatan Grétarsson, Katrín Elvarsdóttir, Spessi og Þórdís Erla Ágústsdóttir eiga verk á sýningunni og sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson.

 
John Szarkowski, yfirmaður ljósmyndadeildar Nútímalistasafnsins í New York (M.O.M.A) og helsti sérfræðingur í bandarískri ljósmyndun setti fram athyglisverða kenningu um ljósmyndun árið 1978 þar sem hann skipti ljósmyndurum í tvo flokka, þá sem litu á ljósmyndun sem tæki til tjáningar á einkalegum viðhorfum, sem sagt speglamenn, og þá sem litu á hana sem tæki til hlutlausrar frásagnar af hinu séða, þ.e. gluggamenn. Sýningin í Listasafni Reykjanesbæjar er tilraun til að ögra nokkrum valinkunnum ljósmyndurum, fá þá til að takast sérstaklega á við spegilhugmyndina sem hér er nefnd. Sumir þeirra hafa alltaf verið spegilmenn, aðrir eru gluggasérfræðingar, en flestir hafa þeir farið bil beggja í ljósmyndum sínum, reynt að virkja hið hlutlæga til að draga fram hið huglæga.

Merki Listasafns Reykjanesbæjar
25. september 2025
Listasafn Reykjanesbæjar leitar að sérfræðingi til afleysinga í eitt ár.
Málverk í grænum tónum á sýningunni Hulduefni, einkasýningu Vilhjálms Bergssonar.
22. september 2025
Sunnudagurinn 12. október 2025, kl. 15:00.
Málverk í bláum tónum á Heimsmynd, einkasýningu Áka Gränz
12. september 2025
Sunnudagurinn 12. október 2025 kl. 14:00.
Fleiri færslur