Sumaropnunartími safnsins og tvær nýjar einkasýningar
Safnið er nú opið á sumartíma, frá kl. 10:00–17:00 þriðjudaga til sunnudaga.
Tvær einkasýningar standa nú yfir í safninu til 16. ágúst. Annars vegar sýning Steingríms Eyfjörð, Ósamhverf endurskoðun, og hins vegar sýning Erlu Þórarinsdóttur, Ómur.
Gestir eru hvattir til að heimsækja safnið og njóta sýninganna yfir sumarmánuðina.





