Opnun: Erla Þórarinsdóttir og Steingrímur Eyfjörð
30. maí kl 14:00
Við bjóðum ykkur velkomin á opnun einkasýningar Steingríms Eyfjörð: Ósamhverf endurskoðun / Asymmetrical Review og Erlu Þórarinsdóttur: Ómur / Resonans, laugardaginn 30. maí kl. 14:00 - 16:00.
Sum verk Steingríms gefa fyrirmæli, sum mjög flókin ef þeim er fylgt bókstaflega. En leiðbeiningarnar hafa þegar gert eitthvað: þær hafa sett þig í stöðu sem þú þarft að taka afstöðu til. Muntu? Muntu ekki? Af hverju ekki? Hvort sem þú gerir eða gerir ekki er jafn merkingarbært.
Er hægt að vekja listaverk upp frá dauðum? Spurningin hangir í loftinu án kaldhæðni. Ef enginn fylgir tilmælum verkanna, er verkið þá til? Og ef einhver gerir það, hvað er þá raunverulega að birtast: verkið eða manneskjan sem stígur inn í það?
Í verkum Erlu birtast geometrísk form í endurtekningu og í teikningunum má sjá samfelldar línur og tákn sem virðast bæði skrásetja hreyfingu og halda henni gangandi. Inn í þessi flæði blandast textabrot eins og Kärnkraft eller kärlek, „kjarnorka eða kærleikur“, þar sem spurningin stendur eftir ósvöruð og sífellt aðkallandi. Verkin verða þannig einskonar vitni samtímans. Þau draga inn í sig óstöðugleika heimsins, pólitíska spennu og mannlega viðkvæmni án þess að festa sig við einn ákveðinn atburð eða tíma. Þar mætast ógn og von, eyðileggingarmáttur og samkennd, sameining sála, Saman.
Daría Sól Andrews er sýningarstjóri sýningar Steingríms Eyfjörð og Helena Solveigar Aðalsteinsbur og Helga Þórsdóttir eru sýningarstjórar sýningar Erlu Þórarinsdóttur.





